HJÁLP!!! ÉG ER MEĐ HNEIGĐJóhannes Erlingsson

Var að horfa á fréttirnar um daginn og það var verið að tala um auglýsinguna sem nokkrir kristnir trúar hópar settu saman.

Auglýsingain var bendluð til samkynhneigðra því þessir hópar voru komnir með lausn við samkynhneigð og vildu bjóða því fólki í "meðferð" gegn þessu.

Landlæknir sagði í þessari frétta að ekki væri hægt að senda fólk í meðferð gegn þessu en annar maður sem heitir Snorri og er forstöðu maður hvítasunnukirkjunar á Akureyri eða eitthvað svoleiðis sagði að það væri víst hægt að lækna þetta því þetta er hneigð og víst að það er hægt að lækna ofbeldisHNEIGÐ þá hlýtur að vera hægt að lækna samkynHNEIGÐ. Ekki dettur mér í hug að Páll Óskar hafi einhvern tíman dottið í hug að þegar hann var dómari í Idolinu að hringja sig inn veikan því hann væri með samkynhneigð á háu stígi.

Þá spyr ég bara hvað með okkur hin sem erum gagnkynHNEIGÐ erum við þá líka með sjúkdóm sem hægt er að lækna? Samkvæmt því sem Snorri sagði þá hlýtur það að vera.

Maður spyr sig?

FréttirJóhannes Erlingsson

Jæja, ég hef ekki verið mikið í kringum tölvu með neti upp á síðkastið svo ég hef ekki getað bloggað en eitthvað hefur nú verið um að vera upp á síðkastið.

Lóla fór á sjúkrahús í dag til þess að láta fjarlæga gallsteina sem hún er búin að vera með síðan í mars, hún kemur heim á morgun Brosandi

Ég, liggur við, grét um daginn því ég fékk að vita það að slayer koma ekki til landsis í haust. Þeir höfðu skrifað það á heimasíðu sína en hafa nú tekið það af henni Gráta Maður verður bara að vona að það komi bráðlega fleiri góð bönd til íslands Brosandi

DrengurJóhannes Erlingsson

Í gær (18. júní) fæddist lítill drengur. Hann mældist 16 merkur og 53 cm. Það fyndna við þetta er að hann fæddist kl 22:18 þann 18. júní og þetta var 18. barnið sem ljósmóðirin tók á móti. Hvað er málið með töluna 18? :D en þeim heilsast báðum vel og fara á Selfoss núna á eftir (19. júní). :D

Ađalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Ef Slayer koma til Íslands hverja myndir ţú vilja sjá hita upp?

Leikur dagsins

Leit